Og mörgum mánuðum síðar
Já dramað í kringum prófin er löngu búið….
Komið nýtt ár, vorið á næsta leyti og önnin meira en hálfnuð
Best að stikla á stóru hvað hefur gerst fram að þessu:
/>
· Fórum heim til Stokkhólms í útskriftina Freys, hef aldrei á ævi minni verið jafn stollt, fór næstum að grenja úr hátíðleika þegar hann trílaði um Nóbelsverðlaunasalinní kjólfötum.
· Varðsamferða Carolu heim í flugi, meig næstum því á mig þegar ég sá hana.
· Fórí próf daginn eftir að ég kom heim…..
· Varð pirruð á leiðinlegu íslensku fólki í jólaösinni
· Fór heim til mömmu og pabba og átti voða góð jól
· Fór á Húsavík til Freys um áramótin, var veik meirihlutann af tímanum svo að það var ekki svo gaman.
· Las stjörnuspána mína fyrir árið í mogganum og fór næstum því að gráta. Það verður allt á afturfótunum fyrir nautið árið 2009 og það á að láta djamm eiga sig og sitja heima og læra.
· Drifum okkur til Rvk eftir jóla/áramóta fögnuðinn og átið svo að Freyr gæti hafið vinnu að nýju og ég gæti farið að læra fyrir upptökupróf ( hmmm borgar sig víst ekki að vera í útlöndum daginn fyrir próf)
· Lærði,lærði, lærði
· Fórí próf, tölva 1 virkaði ekki, tölva 2 virkaði, gekk lala og viðtók martraðir í 3 vikur þar til kom að einkunna skilum.
· Skólinn byrjaði aftur, ákvað að taka 36 einingar (GEÐVEIK) og eyði nú öllum mínum stundum í að reikna á excel.
· Auður mása kom í heimsóknJ
· Fórum heim á Hofsós á Þorrablót, átum, drukkum og dönsuðum eins og brjálæðingar.
· Hittum Bjarka ameríkana, Stínu og Hafstein sem einnig mættu á Þorrablót.
· Hafsteinn,64 ára, rústaði mér í tvisti, er enn að jafna migL Spurning um að fara að mæta í ræktina
· Fórum heim og tattatata mín beið einkunn, hef aldrei áður viljað gráta og hlæja í sömu andrá þegar ég hef fegnið einkunn. Náði með frekar lága einkun sem var samt hæsta einkun.
· Læra á kvöldin, læra um helgar, vakna á morgnana og læra sbr stjörnuspáin
· Fékk metinn inn einn áfanga af þeim 6 sem ég var skráð í og mér létti stórum, fór næstum því að gráta ég var svo glöð. (Hefur sennilega eitthvað að gera með það hvað kennarinn er leiðinlegur)
- Rúnar, Auður og Bjarkey Dalrós komu í heimsókn, átum 1 kg af nammi og höfðum það rosalega gott
· Er búin að vera með hausverk í viku og er ekki að fíla það
En jæja í framtíðinni er það helst að nú fer að leggjast yfir verkefni og verkefnaskil í skólanum, ég ætla nú samt að fara norður helgina 20-22 mars þar sem pabbi minn verður 65 ára þann 21. mars og BjarkeyDalrós, guðdóttir mín verður 1 árs 19. mars.
Svo ætlum við Freyr að fara á Ísafjörð um páskana, heimsækja Stínu og Hafstein, rokka feitt á rokkhátíð og kíkja á Dóru, Bjarka og Hálfdán Ingólf.
Svo ætla ég að leggjast í dvala eftir páska og fram til 15 maí og læra fyrir próf…. en kem svo sterk inn eftir kl 16:30 þann 15 maí, orðin árinu eldri og prófin búin
JEn þangað til ætla ég að reyna að vera dugleg að blogga því ég veit að ég á amk einn aðdáanda af blogginu sem hefur nægan tíma núna í heilsuleyfinu sínu til að lesa bullið mitt
Knús á ykkur öll
Stína