Hæ Stína stuð.......
03.10.2008 15:49:46 / stina

Þunglynd eyðsluþjóð

Já nú eru einhverjir sem iða í sætum sínum og vilja öskra á íslensku þjóðina "told you so" eða " sagði þér það".  Búin að vera skemmtileg vika í skólanum þar sem allt sem okkur var kennt í síðustu viku stenst engan vegin á við raunveruleika þessarar viku.  Ætla ég ekki að íþyngja ykkur með einhverri viðskiptaumræðu en ég er þakklát fyrir að vera ekki lengur í Svíþjóð á íslenskum námslánum og að skulda ekki neitt (hehe nema námslán sem er seinni tíma höfuðverkur).

Framundan er annasöm helgi þar sem ég á að skila verkefni í Ársreikningagerð á þriðjudaginn og hópaverkefni á föstudaginn. Í vikunni þar á eftir á svo að skila verkefni í skattskilum.  Vona nú að þetta hafist allt saman þó að ársreikningaverkefnið sé frekar strembið.  Held að ég megi kalla mig doktor í sjóðsstreymi ef ég næ að klára það!!!

Reykjavík er hvít og falleg núna, ég ljómaði eins og sól þegar byrjaði að snjóa í gær.  Freyr fór og sótti hjólin okkar út svo þeim yrði ekki kalt í snjókomunni.  Við fórum svo bæði hjólandi í vinnu og skóla í morgun.  Ég er svo mikill auli að ég datt þegar ég var rétt að verða komin heim áðan, eða sko aftarahjólið rann til hliðar og ég á leðurstígvélunum steig niður og rann náttúrulega bara líka til;) Töff týpa.  En hvorki ég né tölvan mín hlutum skaða af svo þetta var allt í lagi.

En jæja ætli ég neyðist ekki til að fara að læra núna, búin að þrífa heimilið, blogga, skoða netið en úps kannski ég fái mér eitthvað smá að borða áður en ég byrja!!  Frestun... mjög slæmur ávani námsmanna!!

Vona að þið þraukið - þetta jafnar sig á svona 3 árum;)

Puss och kram
Stína
Silla skrifaði
Það er svoooo gaman að búa í útlöndum núna og þá sérstaklega að vera námsmaður í útlöndum... veiiiiii. Silla velur alltaf rétta tíman! Iss piss, bara gaman að þessu... lít bara á björtu hliðina á þessu öllu saman.. þegar þetta er farið að jafna sig þá er ég vonandi búin með námið og borga bara námslánin með því að taka Íslendinga sem fóru sem verst útúr kreppunni í rándýra meðferð. Kannast við þessa "frestun", hún er búin að standa núna í fjóra tíma hjá mér... ástand... jæja jæja... gangi þér vel;) Hilsen fra DK :)
Svala Rut skrifaði
Hæhæ:D Ákvað að kvitta fyrir innlitið:D ég læt heyra frá mér næst þegar ég er í bænum...þá getum við hisst...ótúrlegt samt hvað tíminn hjá mér fer í eitthvað ,,annað" þegar ég er fyrir sunnan.....;) Heyrumst.....knús úr sveitinni

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 50298
Dagsetning
20. mars 2010
Klukkan