Hæ hæ
Ákvað að blogga í tilefni að því að það eru 10 ár frá því að ég fermdist!!! Blogga bara um stórtíðindi í lífi mínu núna! Já ég á voða bágt með að trúa því að það sé svona langt síðan ég stóð á 10 cm háum hælum og alltof stuttum kjól með skakkar tennur og lét ferma mig.
Sumarið er komið hérna í Svíþjóð og nýtur þess að pína mig sem situr inni í prófalestri, hata próf í júní!!! Annars er ég ein heima þar sem Freyr minn er floginn úr hreiðrinu og fluttur til Íslands. Hann byrjar að vinna á mánudaginn hjá Mannviti í Reykjavík. Ég verð því bara ein hérna næstu tvær vikurnar í prófalestir og að pakka niður og flytja.
Jæja ætla að fá mér muffins sem ég keypti áðan og mjólk og halda svo áfram að læra. Ég og lagabókin mín verðum óaðskiljanlegar næstu vikur...
Yfir og út
Stína